08.05.2012 23:51

Vatnshellir -fréttir úr þjóðgarðinum

Nú er orðið fært í Vatnshelli. Við förum í hellinn eftir því sem hægt er en ferð fyrir 1-15 manns kostar 20 þúsund. Fyrir næstu 15 kostar 15 þúsund. Við förum með að hámarki 30 manns niður í senn og fara tveir leiðsögumenn með hópnum. Panta þarf fyrirfram þar sem við þurfum að útvega leiðsögumann í ferðirnar. Best er að hringja á skrifstofuna í 436 6860 eða senda tölvupóst á snaefellsjokull@ust.is. Ferðir um helgi þarf að panta a.m.k. fyrir hádegi á föstudegi, helst fyrr.

Fastar ferðir í hellinn byrja síðan 4. júní og verða tvær ferðir á dag til 10. júní, kl. 10:00 og 15:30. Frá 11. júní verða fjórar ferðir á dag kl. 10:00, 11:30, 14:00 og 15:30. Gjaldskrá fyrir hellaferðirnar í sumar er ekki tilbúin.

28.03.2012 20:38

Mávur

Táknið Mávur stendur fyrir gleði, frelsi og yfirsýn. Hann bendir þér að hefja þig yfir áhyggjur og að frelsi er hugarástand. Hann táknar það að hefja sig yfir amstur dagsins og þora að þenja út vængi og hefja þig til flugs. 
 

PS:
Fann þessa skilgreiningu á tákninu "mávur" og finnst hún alveg frábær !

17.02.2012 15:39

Gönguhópar

Hvernig væri að ganga á Snæfellsnesi í sumar?  Einstakt svæði til gönguferða og útivistar. Gisting og frábær aðstaða fyrir allt að 12 manna gönguhópa :-

10.11.2011 15:20

Sumarhús um vetur

Væri ekki fábært að bjóða fjölskyldunni í sumarhús á Snæfellsnesi í skammdeginu ?

20.10.2011 21:15

Mávur ehf

Ótrúlegt en satt. Það hefur engin notað "Mávur" á fyrirtæki og "mavur.is" var líka laust þangað til í dag.  Nú sameinum við bæði húsin á eina síðu og kynnum undir nýju samheiti.

19.10.2011 21:42

Mávur

Ný hugmynd. Mávur er fallegur fugl, fallegt nafn sem ekki gleymist:-)

17.10.2011 21:50

Bali

Nýtt nafn á gistingu í Ártúni og Valhöll. Ferðþjónusta Steingerðar og Árna  er að leita að nýju nafni. BALI er hugmynd eða..............?
  • 1
  Hafa samband
=======================
    Sími: 845 1780  
   
mavur@mavur.is

Tenglar

Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 18930
Samtals gestir: 7894
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:16:26

Mávur l Kt.: 680509-0850 l Bnr: 0111-26-10848 l VSK 104164 l Sími: 845 1780 l Netfang: mavur@mavur.is